sunnudagur, desember 07, 2003
Það er alltaf gaman af henni Mörtu eins og þið sjáið hér á einum af tenglunum á blogginu hennar. Já það er gaman af stelpuni.
2:58 AM
laugardagur, desember 06, 2003
Já gott fólk, Hirztarinn okkar allra er nú stoltur eigandi einnar Soft Taco á Mama's Tacos lækjargötu eftir að hafa verið gestur númer 5999 og síðan 6000. Já Frikki minn, alveg hreint magnað hað tæknin getur sagt manni ;) Allavega þá er hann sniðugur gutti, og þegar Friðrik kveikir á Hirztinu þá er ekki aftur snúið....
12:32 AM
Ég mæli með "TF-Stuð" flutt af uppáhalds homma okkar allra honum Páli Óskari eða Paul Oscar eins og hann á til að kalla sig þessi galvaski, ekki bara söngvari, sprellari.
12:26 AM
Frændi minn opnaði pizza stað í dag og var ég nokkuð ánægður með pizzuna sem ég fékk þar. Uno pizza & grill heitir staðurinn og lítur þetta nokkuð vel út, einnig plús að hann er 30 metra frá MS, eða í Gnoðavogi þar sem Jón nokkur Bakan var staðsettur. Ég mæli með því að þið tékkið á þessu. Ég, Gigga frænka og Halli maðurinn hennar vorum allavega södd og sátt.
12:24 AM
Þarna Þekki ég þig Kútur (N.E.R.D. dagsins með öðrum orðum)
Mér finnst eins og að myndir af hr. Hreinssyni séu allar eins...no offence ef þið haldioð að það séi svoleiðis...
9:36 AM
Ok....þessar tvær voru eitthvað að brjóstasleikjast á Felix um helgina en það er greinilega búið að taka myndina út...get ekkert meira gert í því...
9:24 AM
sunnudagur, nóvember 30, 2003
Gestur númer 6000 fær ókeypis Soft Taco á Mama's Tacos. Teljarinn er neðst til vinstri og þú tekur einfaldlega skjámynd og sendir mér hana á mailið mitt og ég gef ykkur taco.
5:38 PM
Hvað var í gangi á Felix í gær??? Tjékkið á gaurnum sem er á bakvið stelpurnar...hann er að horfa á eitthvað!
5:32 PM
föstudagur, nóvember 28, 2003
Af hverju má fólk ekki eiga pening?
10:36 AM
Hvað er málið með að fólk er svo á móti mönnum með peninga?? Þetta eru einfaldlega menn sem hafa notað snilli sína til þess að eignast auðæfi. Hver stefnir ekki á að mennta sig og eignast pening? Þeim sem tókst ekki að eignast pening og eiga lítið eða meðal mikið af honum segja að þeir hafi bara ætlað að geta matað börnin sín þegar þau verða stór...!!! Ekkert nema svikið stolt. Þetta er eins og kommúnismi...fólk sem segist fylgja þeirri stefnu gerir það ekki lengur þegar það eignast eða á möguleika á að eignast pening. Ég skil bara einfaldlega ekki öfundsýkina hjá fólki sem fær ekki sniðugar hugmyndir sem þau gætu grætt á. Ef þau hefðu fengið þessar hugmyndir þá hefðu þau reynt að græða á henni til hins ítrasta...!!! ÞEtta er ekkert nema öfundsýki og þau ættu bara að skammast sín.
10:36 AM
Það heimsótti enginn bloggið mitt á afmælisdeginum mínum!!! Hvað er í gangi??? Gleymdu allir afmælinu mínu? Enginn hefur ennþá óskað mér til hamingju í gegnum comment kerfið...!!! Mér finnst þetta hreint og beint svívirðilegt...!!!
10:21 AM
mánudagur, nóvember 24, 2003
Ég átti afmæli í gær og það var húllum hæ...=) Ég er sem sagt orðinn 18...Einhver verður að hjálpa mér við að setja upp myndasíðu...ég veit ekkert hvað ég get gert til að koma myndunum mínum á netið...
1:48 AM
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
"Ég hef aldrei verið jafn leiður og vonsvikinn og ég er núna"
5:51 PM
Núna er ég sko ekki hress!!! Vera gerði einhvern lista yfir vini sína og skrifaði einnig um þá einhvern pistil...og viti menn, ég fletti í gegnum hann og fann ekki mig. Þetti, án gríns, særir og mér finnst þetta ömurlegt af Veru að gera...!!! Ég er vægt sagt mjög fúll eins og er. Hvernig gat hun bara gleymt mér svona eins og ekkert væri sjálfsagðara?? En ég er greinilega bara svona mikill nobody að mér er gleymt...allavega í augunum á Veru.
5:50 PM
mánudagur, nóvember 10, 2003
"Ég hef aldrei verið í leðurbuxum"
8:26 PM
miðvikudagur, nóvember 05, 2003
Ég er að horfa á 70 mínútur á Popp tíví og eins og er, er Leoncie að gera sig að algjöru fífli. Strákarnir eru svona eiginlega að hrauna yfir hana án þess að vita af því. Svo söng hún lag og það var hreint og beint hörmuleg og svo kunni hún ekkert að dansa. Ef maður fylgdist líka með því hvenar hljóðið kom og hvenar munnurinn hreyfðist þá fannst mér það nú vera mjög líklegt að hún hafi mæmað...!!! Svo segist þessi Indverski trúður ætla að verða fræg í bandaríkjunum og bara út um allan heim...!!!
10:58 PM
"Ég hef aldrei staðið ofan á sjónvarpi og gætt mér á vínberjum"
10:32 PM
Vinsamlegast skiljið eftir comment þið sem eruð að lesa bloggið mitt...og þið sem eruð með síðu setjið lönk á mig...
10:23 PM
mánudagur, nóvember 03, 2003 EN HVER Á BARNIÐ ???? 8:32 PM
Ég ætla að byrja að skrifa niður hluti sem ég hef aldrei gert eð hluti sem ég hef aldrei séð. Hér kemur fyrsta :
"Ég hef aldrei hlupið maraþon og slegið sjálfan mig í leiðini með úldnum fiski"
8:29 PM
ok...me vera bakk! Me vera black ?? Nei nei, plataði ykkur öll...!!! Ég er ekkert svartur, eg enn jafn næpulegur og ávallt. MS er hinn fínasti skóli og ég er að skora á hverju prófinu á fætur öðru, og svo er ég auðvitað með gömlu góðu viðleitnina. Alltaf svo jákvæður og góður. Ég er að segja ykkur að líffræði kennarinn minn hún Soffía Arnþórsdóttir er steiktasta kona ever made...!!! Svo er ég líka með íslensku kennara sem er hressasta og skemmtilegasta kona ever made...
8:28 PM
fimmtudagur, október 09, 2003
Ég verð að segja það að MR - ví myndin var ótrúlega góð og myndi ég segja að þetta væri sú besta MR mynd sem ég hef séð...
10:39 AM